Þar sem þú ert
Sæki staðsetningu…
Hvanneyri
Sæki gögn…
Vegir nálægt þér
Bíð eftir staðsetningu
Norðurljós
Sæki norðurljósaspá…
Hvað þýða litirnir og stigin?
Hviður verða rauðar við 20 m/s eða meira. Stigið undir Hafnarfjalli og á Kjalarnesi fylgir vindviðmiðum Vegagerðarinnar og ræðst af mestu vindhviðu og færð:
| Færð | 20–25 | 25–30 | 30–35 | 35+ |
|---|---|---|---|---|
| Autt, blautt | 2 | 2 | 3 | 3 |
| Hálkublettir | 2 | 3 | 3 | 3 |
| Hált | 3 | 3 | 3 | 3 |
Hviður í m/s. Stig 1 er gult, stig 2 appelsínugult og stig 3 rautt. Viðmiðin eru gerð fyrir stærri ökutæki.
Greiðfær vegur er talinn blautur. Ef veghiti er 0° eða kaldari er hann talinn með hálkubletti, því færð getur verið skráð fyrir mörgum klukkustundum. Snjór, krapi og hálka teljast hált. Ef færð vantar ræður veghiti.
Undir Hafnarfjalli og á Kjalarnesi er aðeins horft á færð á Hringveginum sjálfum.
Viðvaranir efst eru frá Veðurstofunni og gilda fyrir heil spásvæði.
Lokanir birtast aðeins ef vegur er lokaður eða ófær á leiðinni frá Hvanneyri til Borgarness (Borgarfjarðarbraut og Hringvegur við Hafnarfjall) eða til Reykjavíkur (sama leið, Melasveit, Hvalfjarðargöng, Kjalarnes og Vesturlandsvegur).
Bakgrunnurinn fylgir sólargangi og veðri þar sem þú ert: sól og blár himinn, ský, snjór, regn eða stjörnur. Fjallið er Skarðsheiði með Skessuhorni eins og hún sést frá Hvanneyri, máluð í anda Gustave Courbet ofan á hæðarlíkan (Copernicus DEM), svo tindarnir eru á réttum stöðum.
Norðurljósamatið er gróft: það notar virknispá Veðurstofunnar (0 til 9) og hversu heiðskírt spáin segir að verði á dimmum tímum í nótt þar sem þú ert.